Ráðgjafi í netöryggisteymi Deloitte
Full-time Not ApplicableJob Overview
Við leitum að sérfræðingi með brennandi áhuga á netöryggi og stafrænni þróun til að ganga til liðs við vaxandi teymi sérfræðinga okkar.
Við veitum heildstæða netöryggisráðgjöf með áherslu á stjórnun, áhættustýringu og úttektir. Við leitum að einstaklingi sem hugsar í lausnum, er tilbúinn að bretta upp ermar og taka þátt í að efla öryggisvarnir viðskiptavina og draga úr netöryggisáhættu.
Helstu verkefni og ábyrgð
Meðal verkefna sem netöryggisráðgjöf sinnir eru eftirfarandi:
- Alhliða ráðgjöf og stefnumótun á sviði netöryggis og rekstrarsamfellu
- Mat á stjórnarháttum og stöðu netöryggisráðstafana
- Úttektir og gloppugreiningar á fylgni við lög, reglur og staðla
- Áhættumat og áhættustýring netöryggisáhættu
- Stjórnendaþjálfun og fræðsla
Sem hluti af netöryggisteymi Deloitte muntu aðstoða viðskiptavini við að innleiða, efla og fylgja netöryggiskröfum og styðja þá í gegnum áskoranir sem leiða af breyttum netógnum og rekstrarumhverfi ásamt því að vinna að bættum viðnámsþrótti og rekstrarsamfellu.
Hjá Deloitte færð þú tækifæri til að vera hluti af öflugu netöryggissamfélagi á alþjóðavísu, vinna með leiðandi fyrirtækjum og stofnunum, kynnast fjölbreyttum atvinnugreinum og taka þátt í netöryggisverkefnum sem skipta sköpum fyrir rekstrarsamfellu og traust viðskiptavina.
Make Your Resume Now